Velkomin í hóp svína
Klukkan
13.09.2006 10:40:31 / lazy glóey

Bylting á Lötum

.. www.lazy-club.bloggar.is ..

Búnar að færa okkur um set! Allir að svissa um einn rass.

:haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.09.2006 22:49:31 / Lazy Gudny

Góða kveldið

Hey babes var að spá hvort þið væruð ekki til í að koma í bíó í vikunni og þá helst á þriðjudaginn eða miðvikudaginn en mig langar helst að sjá Step up sem er titluð sem deitmynd ársins í fréttablaðinu. Verðum í bandi
                        ------ Channinga Tatum kyntröll með meiru ---------

 

Seinna heimalingar


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.09.2006 17:32:03 / Lazy Lilly

GjössoVEL;*

Góða kvöldið. Mér fannst vera kominn tími á smá blogg hérna hjá mér, þar sem það er liðin dágóð stund síðan ég bloggaði síðast. En allavega þá var busaballið á fimmtudaginn & mér fannst það bara alltilagi, en ekkert til að hrópa húrra fyrir neitt. En laugardagurinn var bara mjög nice, Ég, Bergrós & María Rán skelltum okkur í rvk, fórum & fengum okkur að éta á Hróa Hetti & skelltum okkur svo í bíó á United93, þessi mynd var alveg æðisleg, samt ekkert spes í byjrun, en eftir hlé var hún æði, féllu nokkur tár, því þetta var svo sorglegt. Maður fann svo til með greyjið fólkinu sem vissi bara að það var að fara að deyja & voru bara að hringja í sína nánustu til að segja bless & svoleiðis, ótrúlegt hvað sumir geta verið hrikalega illa innrættir að gera þessu saklausa fólki þetta. En þó svo að hryðjuverkamennirnir hafi verið svona vondir, þá fann ég samt stundum til með þeim í myndinni.

En ef þið spáiið í einu á morgun er 11. september & því 5 ár liðin frá þessu slysi, það er ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða! Ég man að ég var bara einhvað á Chillinu í Fjörheimum þegar þetta var að gerast & allir voru skíthræddir að lífið væri gjörsamlega að fara að enda hjá öllum í heiminum, en ég man það vel að ég felldi tár þegar ég heyrði af þessu slysi þann 11.september árið 2001, því það dóu svo margir saklausir, sem áttu allt lífið sitt framundan. Ég held að þetta slys sé eitt af því sem maður gleymir aldrei á sinni lífsleið, einhvað sem maður á eftir að fara að segja barnabörnunum & svoleiðis.

En ég skora á alla að fara að sjá þessa mynd sem eru ekki búnir að sjá hana, því hún snertir mann virkilega. Og er bara ótrúlega vel leikin & okkur leið aldrei eins& við værum í bíó, heldur frekar eins & við værum bara í flugvélinni, ótrúlegt en satt. Hrein & tær snilld & ekkert annað.

En Guðmunda, ég vil bara þakka kærelga fyrir mig á Fimmtudaginn, og bara öllum stelpunum mínu, því ég skemmti mér bara mjög vel, alltaf jafn gaman þegar við erum allar saman að djamma;** ( Verðum að gera það oftar;) . Og Guðmunda ég kem við tækifæri að sækja bílinn minn, sem ég hélt ég hefði týnt endanlega í þetta skiptið:/

Hver er sammála um að það þarf að fara að uppfæra þessa síðu, gera einhvað meira á hana & kannski breyta henni soldið?


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 22:22:03 / Lazy Áróra

Díses Marrhh

Þá er þetta blessaða Busaball Búið og ætla ég að vona að allir skemmtu sér vel;) við stelpurnar hittumst allvegana hérna heima hjá og gerðum okkur sætar og fínar og fengumokkur síðan að eta og svona.... Valbjörg fór gjörsamlega á kostum hérna heima í myndarvéla pósunum og svona en það vorum við reyndar allar sem að fórum á kostum hehe bara mis mikið :D en ég fór bara heim eftir ballið og örugglega restin á paddy's eða trix... :D

En girls í sambandi við bústað það þarf að fara að panta þannig að við þurfum að ákveða dag og stað muhahaha :haha:

þannig að endirlega látið mig vita hverjar ætla að koma svo að við getum nú farið að panta eitt stikki bústað aight ;) 

ykkar Áróra8|


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 13:41:05 / Lazy Áróra

jæja LAzy Girls

Jæja þá er að koma að busaballinu í fs og maría rán okkar er bara að vinna þá þannig að þá getur hún ekkert tjúttað með oss... en það sem að ég var að pæla eigum við að hittast hérna saman heima hjá mér og borða eh saman og gera okkur til og eh ???? :haha:

Bara svona pæling hjá mér... en ég er til heheh auðvitað alltaf til í eh svona þannig að girls endirlega kommenta á þetta og láta mig vita hverjum langar að vera með hérna heima.:D.

en vá mikið búið að vera um ljósanótt ný búin og ætla ég að vona að allir skemmtu sér konunglega um þá helgi!!! ég skemmti mér allvega konunglega edrú allir piss fullir heheh

en já allir að mæta síðan eldhressir á busaballið auðvitað;) en allvegana stelpur látið heyra í ykkur meira

 Love

 Áróra;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 00:05:34 / Lazy Ran

Ég er í vandræðum..

Jæja stelpur við erum alltaf svooo duglegar ;)  En ljósanóttin mín og Lillyar var eytt á Ungó í brjálæði alla helgina... Við vorum svo búnar á því að við gátum ekki einu sinni hugsað um að fara að djamma en ég held að öll hin svínin hafi verið á djamminu...

Busaballið á Fimmtudaginn og þar sem að ég er að útskrifast um jólin og er í aðlinum þá verð ég bara að vinna á ballinu, jább passið ykkur bara krakkar núna fæ ég loksins að leita á ykkur hehe...:)

En annars er ég í stökustu vandræðum, mig vantar ei-h sem er búinn að ferðast um allt til að segja mér til.  Við erum að byrja að plana útskriftarferð og mig vantar ei-h til að segja mér hvar er gaman.. Við erum að hugsa um Máritíusareyju sem er held ég í Afríku, Bali sem er held ég í Asíu, Tæandi, og ei-h meira veit ekkert um þessa staði en myndirnar af þeim eru ótrúlegar, þetta er bara flott !! Get ekki beðið, það verður samt örrugglega skrýtið að eyða áramótunum ei-h staðar annarstaðar en á Íslandi...

En stelpur áfram með bloggið... !!

María Rán ;**


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 17:01:22 / Lazy Lilly

JÁ NÚNA!

Oh vá, fór að ryfja upp bústaðarferðina enn eina ferðina & hlæ alltaf janf mikið. Án efa var sú djammferð langskemmtilegasta í heiminum & ég held við séum flestar sammála. Það sem var ekki gert þarna, það var ótrúlegt, kinntumst auðvitað tvemur gullfallegum strákum að nafni Straumbreitir & Úlfur, er enn að gráta yfir að hafa þurft að kveðja þá. Haha & við allar þarna naktar í pottinum nema Begga, hún fékk leyfið til að vera í Gula Regnstakknum & Eyrún Erla í Skykkjunni. Við vorum eins & beljur á svelli þarna & ég hlæ alltaf jafn mikið þegar ég hugsa til þess þegar að Begga var einhvað að standa uppúr pottinum & bara í helvítis regnstakknum & hrundi svona skemmtilega á hausinn, það var BEST. Ég held að við höfum ekki átt eina mínútu í þessari ferð sem var leiðinleg. Ég held að allar gætu verið sammála mér með það.

Auðvitað fær bjórinn að fara með.

Vá stelpur eruði að grínast, nennir einhver að taka upp tólið NÚNA  & panta eitt stykki bústaðarferð & það sem fyrst! Þá vil ég líka fá allar - Lilly, Bergrós, Eyrún Erla, Eyrún Ósk, S. Eygló, Karen Ösp, María Rán, María Guðrún, Tinna Rún, Guðmunda Áróra, Lára Hleiður, Linda Björg, Guðný Eiðs, Guðný Sigurbjörg, Valbjörg, Elfa & Kristín Lea.


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.08.2006 18:43:18 / lazy glóey

Nýtt


www.picturetrail.com/lazyclub2

Opnun Trix, vinkonuhittingur hjá Lillý, hafnirnar & Hápunkturinn

:haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha:

Kveðja Glinglóó


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 23:23:02 / lazy glóey

..góðar stelpur fara til himna!

Nýr bíll kominn í hús hér á bæ og minns er ekki lengur bíllaus. Það er helvíti að vera án bíls.. Þó svo að allir í kringum mann eigi bíl og að maður hafi tvo loðna leggi þá er samt leiðinlegt að hafa engan bíl sjálfur! Allavega, festi ég kaup í Renault Megan týpunni í dag.

 Ég held ég sé ástfangin í 2. skiptið, bytheway, ástfanginn? Það er frekar hallærislegt orð yfir eitthvað sem á að veita manni hamingjusama tilfinningu! Finnst ykkur það ekki? Er maður fangi ástarinnar ef maður finnur rétta aðilann til að deila öllu með, eignast börn og eyða restinu af lífinu með? Afhverju endilega þessi tvö orð saman? Að mínu mati er þetta bara ógeðslegt orð.. Ok, núna er ég komin langt yfir bílaissjúið.. en já, fór í dag og keypti mér bíl. Hann er afar kósy og voða homí, grænn að lit. Fæ hann samt á mánudaginn útaf einhverju skoðunarferli sem hann á eftir að fara í gegnum.. Biðin er lengri en Reykjanesbrautin skal ég segja ykkur, ég get ekki beðið eftir að fá hann og hafa hann útaf fyrir mig þar sem ég hef aldrei átt neitt svona verðmætt nema lífið mitt kanski. Helgi fór líka í dag og keypti sér bíl, grænan einnig, Hundai Getz. Rosalega þægilegur í axtri. En enginn er betri en minn!! Always ride wit the best they say.

Föstudagur í dag og nýr skemmtistaður að opna og ný og betri Gallerý búð segja þeir, svo var eh önnur búð að opna við hliðiná Subway ekki fyrir svo löngu ásamt poolstofunni. Eru tímamót hjá öllum? En fyrir vikið er eitthvað nýtt að gera fyrir alla í bænum, ferskleikinn kominn í ljós aftur.

Gísli Örn fékk um daginn 100.000kr fyrir besta nafnið sem hentaði stúdentagörðunum að Krossmóa 3. Þeir munu héðan í frá bera nafnið Þrekgarður eða var það Þrekgarðar? Ekki amarlegt það! Til hamingju með það.. Stundum sakna ég þess að búa ekki þarna lengur. Og að hafa stelpurnar sem nabours! Það var tími sem gleymist aldrei. En sá tími mun koma. Gleymi því ekki þegar við sem litlar stelpur höfðum ákveðið að búa allar saman í stóru 3gja hæða húsi allar með sitt herbergi þegar við yrðum eldri. Spice World eitthvað að hafa áhrif! Það hefði verið eitthvað meiriháttar erfiði! Guð minn.. Ég þakka guði þegar ég sé hann fyrir að láta þennan draum ekki verða að veruleika og gleymt honum barasta því þetta hefði aðeins verið gaman fyrstu vikuna heldég.

Ýmyndið ykkur allar þessar dramantínur í einu húsi saman! Jibbí.. :haha:

Við vorum einum of ýmindunarveikar á yngri árum. Svei mér þá..

En útí fleiri memories. Þar sem við eigum svo góðar minningar síðan á Breiðinni Akranesi í ágúst fyrra sumar (NOT) er þá ekki tilvalið að skella sér á Sálina núna ári seinna þar sem þeir verða að spila annað kvöld og endurupplifa góða tónleika og skömminni skárra eftirpartý einhversstaðar?? Og finna þá einhvern betri og skynsamlegri stað til að sofa á heldur en í bíl útá bryggju í skítafýlu? Þá meina ég sko í mannlegri skítafýlu!!? Eruði geim einsog Guðnýbeib segir?

Allavega vona ég að ég sjái ykkur á tripleXtrix í kvöld og hóiði ef ykkur langar á ballið annaðkvöld! Þið vitið að ég er til.

;);););););););););)

..góða helgi elskur..

Ps. færslan er skreytt myndum af alkahólistum!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 19:13:15 / Lazy Lilly

:)

Góða kvöldið elskurnar mínar.. Þá er loksins komin helgi & ég get hugsað til þess að ég á frí í heila 3 daga!! Mér finnst það bara ótrúlegt en auðvitað æðislegt í leiðinni! Er búin að vera ótrúlega busy einhvað uppá síðkastið alltaf að vinna & jaríjarí! En helgarplanið mitt er að vera bara róleg í kvöld, en detta í það á morgun! :) Pakka öllum hópnum saman & bara rólegt djamm. Allar til ?

Sætt ekki satt?


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 00:55:41 / Lazy Ran

Áfram Stelpur !!

Jæja stelpur, hvernig væri að reyna að rífa sig upp úr þessari leti og aumingjaskap og reyna að skrifa ei-h hérna inná..;)

Allavegana, þá er skólinn byrjaður, við græddum eina nýja úr hópnum inn í skólann en hún Guðný Sigurbjörg fyrrverandi verzópíja saknaði okkar svo mikið að hún ákvað að fórna Verzló til að ganga í lið með okkur hinum hlunkunum.. Við misstum að vísu einn meðlim í tímabundið frí en við vonum að hún komi fljótt aftur.... Svo flaug ein bara í burt og ákvað að flytja í bæinn en það er hún Karen okkar en við verðum þá bara að vera duglegar að kíkja á hana þarna í höfuðborgina..... 

Ég er samt í mjög góðum málum, þetta er seinasta önnin mín í Fjölbrautarskóla ég útskrifast 20. Desember ;)  Ég er bara í 2 áföngum en eins og mín heppni er alltaf þá raðaðist taflan mín ömurlega þannig að ég verð mest í því að hangsa í matsalnum eða ei-h í vetur.... Ég byrja samt aldrei fyrr en í fyrsta lagi 10 á morgnana, stunum 12 og suma daga er ég bara í einum tíma þannig að þetta er mjög þægilegt...

 

 



Þetta sumar er samt búið að vera allveg frábært, í vor þegar að við fórum að hugsa um að fara út þá ákvað ég að þetta sumar myndi ég bara fara út og hafa það svo bara rólegt það sem að eftir væri en það fór ekki allveg svo.. Við brjuðum á því að fara til Benidorm og eins og þið hafið örrugglega heyrt of oft þá var það bara ótrúlega gaman, hefði ekki getað ímyndað mér hvað þetta var gaman, ég er strax farin að plana aðra ferð næsta sumar..:)    Við skelltum okkur svo á Færeyska og Írska og það var líka frábært.... Þá leið að verzlunarmannahelginni og það var ekki hægt að sniðganga Eyjar, þannig að ég fór þangað líka og auðvitað stóð Þjóðhátíðin fyrir sínu ;D  Strax helgina eftir hana þá héldu Lilly og Guðmunda afmælin sín og það var rosa party allt flæðandi í bollu og hinu kolólöglega og Baneitraða Absent !! Sálarball svo kvöldið eftir og þynnka á Sunnudeginum....  Beilaði samt á Menningarnótt seinustu helgi, ég held að ég sé með ofnæmi fyrir svona mikið af fólki ég og Begga skelltum okkur bara niðrí bæ eins og okkur einum er lagið ;)

 

 



En stelpur hvað er planið fyrir þessa helgi, þetta er fríhelgin mín þannig að ég vona að það verði ei-h líf í okkur, fyrst að okkur gekk svona vel í sumar til hvers að hætta núna ??

 

 



Og af því að ég efast um að ei-h eigi eftir að nenna að blogga ei-h hér fyrir næsta Þriðjudag þá vil ég minna ykkur á að kjósa Magna okkar til að reyna að halda honum inni í þessum þætti...  Það er hægt að kjósa á www.rockstar.msn.com strax eftir þáttinn og maður má kjósa eins oft og maður vill og það kostar ekki neitt, þannig að allir að kjósa eins og þeir eigi lífið að leysa, þetta er bara eins og að mæta á fótboltaleik með landsliðinu til að styðja “strákana okkar” kjósum og styðjum Magna “okkar” ;)

 

 



María Rán...


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.08.2006 10:40:25 / Lazy Gudny

AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA !!!!!!!!!!!!!!

Ég gæti gargað, var búin að skrifa nett blogg í Word, og færði það svo inná bloggið og staðfesti, fór svo og strokaði út í Word , fór svo á síðunna og EKKERT.

Þannig að blogg frá mér þarf að bíða betri tíma.

Þangað til verið góð hvort við annað þá gengur allt svo miklu betur ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.08.2006 01:02:21 / Lazy Lilly

Long Time No See.. :/

Jæja þá er kominn tími á smá blogg. Eins & flestir vita héldum við Guðmunda upp á 18 ára afmælin okkar þann 11. ágúst & heppnaðist það bara mjög vel að mínu mati :) ég allavega skemmti mér konunglega! Ég vil bara þakka öllum fyrir komuna & gjafirnar sem við fengum, þetta var bara æðislegt & bjuggumst við alls ekki við því að fá svona magar gjafir! Þannig ég vil bara þakka öllum kærlega vel fyrir mig;*

Þið eruð æði!;* (Þið vitið hverjar/ir þið eruð).

Svo styttist í skólann & svei mér þá ég held að mér hlakki bara pínulítið til, það er svo gaman að byrja í skólanum,, Horfá á busavíxluna & svo nottla busaballið & bara öll böllin.  En því miður þá mun María Rán ekki djamma mikið með okkur á þeim, því hún mun vera að henda okkur út af þeim fyir of mikla ölvun. :/

En ég held að þetta sé komið nóg blogg frá mér í bili, ég skora á nýliðann okkar hana Guðný Sigurbjörgu að henda inn nokkrum línum, komi tími til Elskan ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.08.2006 14:40:49 / lazy glóey

Takkos smakkos! ;*

Sælar! Langar bara að þakka kærlega fyrir mig síðan úr afmælinu og æðislegt að hitta flestar á Sálinni. Gaaaad.. En jæja, ég er að setja inn fullt af myndum! Benidorm verður því miður að vera læst.. :( Sorry, ég opna það kanski við tækifæri seinna meir! Endilega látið bara vita ef þið viljið password.

Lille hilsen Gló


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 15:55:59 / Lazy Ran

Síjú !

Merkisdagur,  hún Guðmunda okkar er loksins sjálfráða já hún á afmæli í dag skvízan okkar og óska ég henni innilega til hamingju með það ;**

En Jæja þá er ég bara farin til eyja, vonandi skemmtið þið ykkur vel um helgina ég veit að ég mun gera það ;**

Mæti hress og kát aftur á Landið á Þriðjudaginn með fullan pakka af sögum vonandi ;)

María Rán ;**


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7